Trump tekinn við sem forseti Bandaríkjanna

Donald Trump sór embættiseið sinn rétt í þessu.
Donald Trump sór embættiseið sinn rétt í þessu. AFP/Saul Loeb

Don­ald Trump sór nú síðdeg­is eið sem 47. for­seti Banda­ríkj­anna í þing­húsi Banda­ríkj­anna að viðstöddu fjöl­menni. 

Trump tek­ur við af Joe Biden, sem hef­ur verið í embætti und­an­geng­in fjög­ur ár. Sjálf­ur var Trump fyr­ir­renn­ari Bidens frá 2017.

Hann er fyrsti for­set­inn til að gegna embætti í tvígang síðan Grover Cleve­land gerði það árið 1893.

Donald Trump í ræðustól í dag.
Don­ald Trump í ræðustól í dag. AFP/​Chip Somodevilla

Trump sagði í ræðu sinni að landið muni blómstra á ný nú þegar hann er tek­inn við völd­um. Sagði hann að gull­öld Banda­ríkj­anna hefj­ist nú og landið muni hér eft­ir blómstra og njóta virðing­ar. „Ég mun ein­fald­lega setja Banda­rík­in í fyrsta sætið,“ sagði Trump.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Don­ald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. AFP
mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert
Loka