78 látnir eftir brunann: Ellefu handteknir

78 manns fórust í eldsvoðanum.
78 manns fórust í eldsvoðanum. AFP

Alls hafa 78 dauðsföll verið staðfest í kjölfar eldsvoða á skíðahóteli í Bolu í Kartalkaya í Tyrklandi.

Dómsmálaráðuneyti Tyrklands staðfestir þetta í yfirlýsingu þar sem jafnframt er greint frá því að búið sé að bera kennsl á fórnarlömbin.

Heilu fjölskyldurnar fórust í eldsvoðanum á Grand Kartal-hótelinu snemma á þriðjudagsmorgun. 

Spurningar hafa vaknað um eldvarnarráðstafanir á lúxushótelinu, sem er tólf hæða, en grunur leikur á um að þær hafi verið vanræktar.

Brunabjöllur fóru ekki í gang

234 gestir voru á hótelinu þegar eldurinn kviknaði á fjórðu hæð hótelsins og breiddist hann hratt um bygginguna.

Gestur hótelsins sem komust lífs af og sérfræðingar segja brunaviðvörunarkerfi hótelsins ekki hafa virkað.

Ellefu hafa verið handteknir í tengslum við brunann, þar á meðal eigandi hótelsins, framkvæmdastjóri, forstjóri auk yfirmanns slökkviliðsins í Bolu.

Líkkistur nokkurra fórnarlambanna.
Líkkistur nokkurra fórnarlambanna. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert