Rússar fangelsa fyrrverandi kennara fyrir skrif á netinu

Kennarinn fyrrverandi sagði Pútín vera leiðtoga hryðjuverkaríkis.
Kennarinn fyrrverandi sagði Pútín vera leiðtoga hryðjuverkaríkis. AFP

Konstantín Selesnev, 64 ára gamall fyrrverandi kennari, var í dag í dæmdur til átta ára fangelsisvistar fyrir það að gagnrýna Vladimír Pútín Rússlandsforseta og fyrir það að ásaka rússneska herinn um voðaverk í Úkraínu.

Rússar leiddu í lög löggjöf árið 2022 við upphaf stríðsins í Úkraínu sem skerðir tjáningarfrelsi verulega. Þetta var gert til þess að bæla niður gagnrýni sem beind er að stjórnvöldum og hernum. Selesnev var fundinn sekur um upplýsingaóreiðu á grundvelli þessarar löggjafar.

Selesnev setti inn færslu á rússneska samfélagsmiðlinum Vkontakte þar sem að hann sagði Pútín vera leiðtoga hryðjuverkaríkis auk þess sem hann hvatti saksóknara í Rússlandi til þess að rannsaka ásakanir um að herinn hefði framið fjöldamorð á almennum úkraínskum borgurum í upphafi stríðsins í úkraínsku borginni Bútsja.

Lögmaður Selesnev sagði um ansi harða refsingu að ræða, jafnvel í núverandi árferði. Hann hrósaði hugrekki skjólstæðings síns og sagði hann aðeins hafa birt upplýsingar sem væru nú þegar aðgengilegar öllum.

Hundruð hafa verið fangelsaðir í Rússlandi fyrir það að gagnrýna stjórnvöld eða herinn síðan í upphafi stríðsins í Úkraínu. Hægt er að refsa mönnum fyrir það að dreifa öllum upplýsingum sem koma ekki beint frá stjórnvöldum, en aðallega hafa menn verið fangelsaðir fyrir það að ásaka herinn um fjöldamorð í Bútsja. Rússar hafa staðfastlega neitað öllum ásökunum um fjöldamorð í Bútsja og hafa sakað Úkraínumenn um að falsa sönnunargögn þess efnis.

Fjöldamorðin eru meðal þess grimmdarlegasta sem Rússar gerðu í upphafi stríðsins, en íslenski ljósmyndarinn Óskar Hallgrímsson var meðal annars þar á ferð eftir að Rússar voru hraktir á brott. Sagði hann mbl.is frá eyðileggingunni og hryllingnum í apríl árið 2022.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert