Málverk ítalska listamannsins Leonardos da Vincis af Mónu Lísu mun fá sitt eigið rými á Louvre-safninu í París en til stendur að endurnýja safnið töluvert á næstu misserum.
Þetta tilkynnti Emmanuel Macron Frakklandsforseti í dag þegar hann kynnti þær breytingar sem á að ráðast í á safninu.
Mun fólk þurfa sérstakan aðgangspassa til að berja málverkið augum þar sem nýi sýningarstaður þess verður sjálfstæður miðað við aðra hluta af safninu.
Einnig tilkynnti Macron að gerður yrði nýr inngangur sem á að hjálpa til við að létta á þrengslum sem myndast þegar fólk heimsækir safnið. Verður nýi inngangurinn fjármagnaður af safninu sjálfu.
Endurnýjunaráætlunin kemur í kjölfar minnisblaðs sem forstöðukona Louvre-safnsins, Laurence des Cars, skrifaði til menningarmálaráðherra Frakklands, Rachida Dati, í síðustu viku.
Varaði þar des Cars við mikilli útbreiðslu skemmda innan safnsins og vatnsleka sem væri að finna á sumum svæðum.
Þá væri hitastig í einhverjum rýmum óhagstætt hvað varðveisluskilyrði málverka varðar.
Einnig tók forstöðukonan fram að vinsældir safnsins, sem er eitt af þekktustu kennileitum Parísar, væru að valda miklu álagi á bygginguna og þyrfti safnið því á endurnýjun að halda. Líklegt væri að hún yrði bæði kostnaðarsöm og flókin.
Alls heimsóttu 8,7 milljónir manna safnið á síðasta ári en það eru um það bil tvöfalt fleiri gestir en safnið var hannað fyrir að taka móti og hefur des Cars lýst þeim áhyggjum að það gæti haft áhrif á upplifun þeirra sem heimsækja safnið.