Donald Trump Bandaríkjaforseti stefnir að opnun fangageymslu í Guantánamo-flóa á Kúbu.
Hún eigi að halda allt að 30.000 innflytjendur sem búi nú ólöglega í Bandaríkjunum.
Þetta tilkynnti forsetinn rétt áður en hann undirritaði Laken Riley-lögin, en þau hafa þá þýðingu að fólk sem dvelur ólöglega í Bandaríkjunum og er sakað um þjófnað eða ofbeldisglæp á það á hættu að vera vísað úr landi jafnvel áður en viðkomandi er sakfelldur.
AP greinir frá.