Fjórir Norðmenn látnir eftir snjóflóð í Ölpunum

Hættustigið var á þremur af fimm.
Hættustigið var á þremur af fimm. AFP

Fjórir norskir skíðakappar fórust í snjóflóði í frönsku Ölpunum í dag. Norsk yfirvöld staðfesta þetta í yfirlýsingu.

Hinir látnu voru hluti af sjö manna hóp á skíðum í Savoie, skammt frá landamærunum að Ítalíu.

Þrír sluppu ómeiddir, að því er AFP hefur eftir yfirvöldum á svæðinu.

NRK hefur eftir bæjarstjóranum á svæðinu að snjóflóðið hafi verið „gríðarlega stórt“. 

Staðarmiðlar segja að flóðahættan á svæðinu hafi verið metin á þriðja stigi af fimm, eftir að 60 sentimetrar af snjó höfðu fallið á síðustu tveimur sólarhringum.

Allt að 20 manns tóku þátt í aðgerðunum, að sögn NRK.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert