Gul viðvörun vegna veðurs er í gildi á Kanaríeyjum. Varað er við vindhviðum sem gætu náð allt að 21 metra á sekúndu og hættulegum aðstæðum við strendur.
Hiti verður á bilinu 14 til 22 gráður og líkur eru á rigningu.
Þó lægðin Ivo sé yfir Biskajaflóanum þá þeytir hún vindum úr norðri yfir eyjarnar.
Áhrifa lægðarinnar mun einnig gæta á morgun.
Canarias 7 greina frá.
Það verður skýjað yfir eyjunum La Palma og Lanzarote í fyrramálið en það rofar til upp úr hádegi.
Við norðvestur- og suðausturhluta eyjaklasans er spáð norðaustanátt.
Á föstudag verður að öllum líkindum enn skýjað, en þó ekki fyrir tilstuðlan Ivo. Er úrkomu þá spáð í norðurhluta eyjaklasans.