Sprengjugerðarmaður gripinn – ráðherra blæs til neyðarfundar

Max Åkerwall, starfandi lögreglustjóri suðurumdæmis lögreglunnar í Stokkhólmi, ræddi við …
Max Åkerwall, starfandi lögreglustjóri suðurumdæmis lögreglunnar í Stokkhólmi, ræddi við morgunfréttaþátt SVT í morgun um sex sprengingar í gær og handtöku sprengjugerðarmanns. Skjáskot/Sjónvarpsfréttir SVT

Aldrei hefur svo rammt kveðið að sprengingum í Svíþjóð sem í gær, þriðjudag, þegar alls sex sprengjur sprungu víða um landið og hefur sænska lögreglan nú haft hendur í hári sprengjugerðarmanns á vegum eins þeirra glæpagengja sem berast á banaspjót í landinu.

Meðal annars var sprengt í höfuðborginni Stokkhólmi og Helsingjaborg við Eyrarsundið og segir Max Åkervall, starfandi lögreglustjóri í suðurumdæmi Stokkhólmslögreglunnar, við ríkisútvarpið SVT að hinn handtekni hafi gegnt burðarhlutverki í sprengjugerð undirheimanna.

Åkervall ræddi við morgunfréttaþáttinn Morgonstudion á SVT í morgun og kom þar inn á atriði sem áður hafa verið fréttaefni og mbl.is meðal annars fjallað ítarlega um – höfuðpaura og gengjastjórnendur sem fjarstýra liði sínu frá útlöndum.

Enginn hörgull á ungu fólki

„Ástæðurnar að baki þessu eru að utan marka Svíþjóðar sitja menn sem stjórna atburðarásinni og samhæfa hana með ýmsu móti auk þess sem enginn hörgull er á ungu fólki, einkum drengjum, sem eru fúsir til að taka verkin að sér,“ sagði lögreglustjóri í Morgonstudion.

Nú sé svo komið að tilræðismenn þessir – þeir er koma sprengjunum fyrir á þeim vettvangi sem er skotmarkið – komi frá öðrum landshlutum til að sinna verkefnum sínum og hafi engin tengsl við brotavettvanginn.

„Stór hluti þeirra er á flótta eftir að hafa strokið úr ólíkum úrræðum félagsþjónustunnar, til dæmis HVB-heimilum [„Hem för vård eller boende“ sem eru áfangaheimili fyrir ungmenni á refilstigu] eða LVU-úrræðum [skammstöfunin vísar til heitis sænskra laga um sérstök úrræði fyrir ungmenni, lag med särskilda bestämmelser om vård av unga] og þar fram eftir götunum,“ útskýrði Åkervall í morgunþættinum.

Dómsmálaráðherra kallar aðgerðaráð saman

Kvað hann mestu skipta að lögreglu hefði auðnast að hafa hendur í hári margra þeirra unglinga sem fengnir séu til þess hluta verksins að koma sprengju fyrir auk þess sem fengur þætti í að hafa handtekið sprengjugerðarmanninn. „Það eru þeir sem útbúa sprengjurnar og setja þær saman,“ sagði lögreglustjóri.

Eins og mbl.is greindi frá í gær fundaði sænski dómsmálaráðherrann Gunnar Strömmer með lögreglu á föstudaginn í tilefni þess að 24 sprengjur höfðu sprungið í landinu fyrstu 24 daga ársins. Þær eru nú orðnar á fjórða tug innan við viku síðar.

Hefur Strömmer nú kallað saman aðgerðaráð um aðgerðir gegn skipulagðri glæpastarfsemi til neyðarfundar á morgun, fimmtudag.

SVT

Aftonbladet

Expressen

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert