Flugdeild danska heimavarnarliðsins, flyverhjemmeværnet eins og hún kallast upp á dönsku, óx í gær mjög fiskur um hrygg er varnarmálaráðuneyti landsins afhenti henni tvær sérútbúnar Twin Otter-eftirlitsflugvélar er danska ríkið hefur tekið á leigu til átta ára.
Eftir því sem Gunnar Arpe Nielsen, majór og yfirmaður danska heimavarnarliðsins, segir ríkisútvarpinu DR þar í landi leysa Twin Otter-vélarnar nýju eldri vélar af hólmi sem teknar hafa verið úr þjónustu. Eru nýju flugvélarnar útbúnar fullkomnum myndavélum og skynjurum auk þess sem þær hafa meira flugþol en þær eldri og þeim má fljúga mun hægar, krefjist aðstæður þess. Að lokum þurfa þær mun styttri flugbraut en forverarnir.
Lætur Nielsen þess enn fremur getið að Twin Otter-vélarnar muni leika burðarhlutverk í því að efla öryggi Danmerkur þar sem hættan á hryðjuverkum og öðrum ógnum eykst jafnt og þétt.
„Þetta táknar að við getum haldið úti leit á mun stærri svæðum og af meiri nákvæmni. Það styrkir okkur við úrlausn okkar verkefna,“ segir majórinn um tæknilega fullkomnun nýju vélanna. Eftirlitshlutverkið verði þungamiðjan.
Dennis Thagaard offursti tekur undir með Nielsen og hefur því við að bæta að heimavarnarliðinu verði í framtíðinni auðveldara að hlaupa undir bagga með danska flughernum og almenna hernum. Heimavellir vélanna tveggja verða í Álaborg og Hróarskeldu.
Heimavarnarliðið byggist á sjálfboðastarfi og hafa flugmenn flugdeildar þess nú notið þeirrar þjálfunar er gerir þeim kleift að nýta möguleika Twin Otter-vélanna til hins ýtrasta.
Einn þeirra er Jan Larsen sem tilheyrir Hróarskeldudeild heimavarnarliðsins og kveðst í samtali við DR iða í skinninnu að taka glænýja vélina til kostanna.
Í áhöfn vélanna verða tveir flugmenn og einn kerfisstjóri sem annast skynjara og myndavélar. Auk þeirra þriggja er rými í vélunum fyrir átta manns sem til dæmis geta verið sérfræðingar á ólíkum sviðum – allt eftir því hvaða verkefni eru á dagskrá.
Flugdeild danska heimavarnarliðsins lætur ekki aðeins til sín taka í danskri lofthelgi heldur hefur hún átt sín föstu verkefni á vegum Frontex, landamærastofnunar Evrópusambandsins.