Þriðju fanga- og gíslaskiptin í dag

Vopnahlé á Gasa tók gildi 19. janúar.
Vopnahlé á Gasa tók gildi 19. janúar. AFP

Átta gíslar sem hafa verið í haldi Hamas-samtakanna á Gasa verða látnir lausir í dag og 110 Palestínumönnum verður sleppt úr fangelsum í Ísrael.

Þetta verða þriðju fangaskipti Hamas og Ísraels frá því vopnahlé tók gildi fyrir rúmri viku síðan.

Fjórðu fangaskiptin eru áætluð um helgina en Hamas sakaði Ísraelsmenn í gær um að stofna vopnahlésamningunum í hættu með að fresta hjálparsendingum á Gasa. Þessum ásökunum hafa Ísraelsmenn vísað á bug.

Skrifstofa Benjamíns Netajahús, forsætisráðherra Ísraels, greindi frá því að að þeir þrír Ísraelsmenn sem verða látnir lausir í dag séu Arbel Yehud, Agam Berger og Gadi Moses og bætti við að fimm Taílendingar sem hafa verið í haldi á Gasa verði látnir lausir.

Hamas-samtökin hafa hingað til sleppt sjö gíslum og 290 fangar hafa verið látnir lausir í skiptum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert