Ættingjar syrgja nú ástvini sem létu lífið í troðningi á fjölmennri trúarhátíð á norðurhluta Indlands í vikunni og bíða þess nú að fá að flytja líkin heim.
Að minnsta kosti 30 biðu bana á miðvikudag á Kumbh Mela, sem er ein stærsta trúarhátíð heims og einn af heilögustu dögum hindúa. Trúarhátíð þeirra stendur alls yfir í sex vikur.
Slysið var í borginni Prayagraj sem er skammt frá Sangam þar sem hinar heilögu ár Ganges, Yamuna og Saraswati mætast, en þangað koma hindúar til að baða sig í trúarlegum tilgangi.
Mikill troðningur hafði myndast við varnarveggi sem höfðu verið reistir á svæðinu en hluti þeirra gaf sig með þeim afleiðingum að fólk varð undir þeim.
Hátíðin er auglýst sem stærsta samkoma mannkyns og þangað safnast saman milljónir pílagríma hvaðanæva úr heiminum.
Sjónarvottar hafa sakað lögregluna og skipuleggjendur um að hafa staðið sig illa við að hafa stjórn á mannfjöldanum og að hafa ekki afmarkað sérstök svæði svo fólk kæmist örugglega á milli staða, að því er segir í umfjöllun BBC.
Yfirvöld í Uttar Pradesh hafa hafið rannsókn á atvikinu.
Ættingjar þeirra sem létust segja að mörgum spurningum sé enn ósvarað. Aðrir bíða enn frétta af ástvinum sínum.
Kaikeyi Devi tók þátt í Kumbh Mela ásamt eiginmanni sínum. Hún horfði á eiginmann sinn troðast undir þegar slysið varð. Hún kveðst ekki geta gleymt því.
„Hann var dreginn í öllum glundroðanum og við byrjuðum að gráta. Sleppið honum! Sleppið honum! Við erum hérna. En hann kom aldrei til baka,“ sagði Devi í samtali við fréttamann Reuters er hún beið fyrir utan líkhús í Prayagraj þar sem hún beið eftir að fá líkið afhent til flutnings.