Ljónsungi, sem haldlagður var á heimili „YouTube-ara“ í Pakistan hefur fengið heimili í Safari dýragarði í Lahore í íslamska lýðveldinu.
Tanvir Janjua, aðstoðarforstöðumaður Safari dýragarðsins, segir að ljónsunginn hafi verið þjakaður af streitu þegar hann kom í garðinn. Hann vill koma því á framfæri að það sé ekki fallegt að taka ljónsunga frá móður sinni, það sé dýraníð og bæði siðferðislega rangt og ólöglegt.
„Unginn var tekin af móður sinni þrátt fyrir að hún væri að gefa honum.“
Janjua segir að unganum líði betur í dag og sé allur að koma til. Honum hefur verið gefið úr lófa og dýralæknismenntað starfsfólk garðsins mun sjá um hann og ala hann upp.
Áhrifavaldurinn, Rajab Butt, sem fengið hafði ungann í brúðkaupsgjöf, hefur samið við yfirvöld um að tala fyrir og kynna málefni velferðar dýra til að sleppa við allt að tveggja ára fangelsisvist fyrir að eiga óskráð villt dýr.