Stjórnvöld í Bandaríkjunum og í Úkraínu segja að norður-kóreskir hermenn sem barist hafa með Rússum í stríðinu í Úkraínu hafi verið kallaðir til baka frá víglínunni. Hermenn frá Norður-Kóreu hafa ekki sést í víglínunni í tvær vikur.
Úkraínskir hermenn hafa lýst norðurkóresku hermönnunum sem góðum hermönnum en sökum lélegs undirbúnings hefur mannfall meðal þeirra þó verið mikið.
Rússnesk stjórnvöld kusu að tjá sig ekki er þau voru fyrr í dag spurð út í það hvort að norðurkóresku hermennirnir hefðu verið kallaðir til baka frá víglínunni
Dmitry Peskov, upplýsingafulltrúi stjórnvalda í Rússlandi, var spurður út í þessar fregnir fyrr í dag, hann neitaði að tjá sig.
„Ýmsu er haldið fram, sumt af því er rétt og sumt af því er rangt og það er bara ekki þess virði að tjá sig í hvert einasta skipti," sagði Peskov.
Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur birt myndefni sem hann segir vera af norðurkóreskum hermönnum sem að hafa verið handsamaðir af úkraínskum hermönnum í Kursk-héraði.