Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað að reisa skuli fangabúðir fyrir þrjátíu þúsund ólöglega innflytjendur við Guantanamo-Flóa á Kúbu. Bandaríkjamenn starfrækja einng fangabúðir fyrir meinta hryðjuverkamenn við Guantanamo-flóa.
Trump segir að nýju búðirnar verði aðskildar þeim sem að hýsa meinta hryðjuverkamenn. Bandaríkjamenn hafa áður notað Guantanamo-flóa til þess að hýsa ólöglega innflytjendur en Trump hyggst nú reisa enn stærri aðstöðu til þess að fjölga þeim innflytjendum sem þar dvelja.
Aðstaðan við Guantanamo-flóa verður nýtt fyrir þá ólöglegu innflytjendur sem að brjóta alvarlega af sér. Þar verða menn vistaðir sem eru ekki treystandi til þess að dvelja meðal annarra bandarískra fanga að sögn Trump.
Bandaríkjamenn hafa fangelsað meinta hryðjuverkamenn í fangabúðum við Guantanamo-flóa, allt frá árásunum 11. september 2011. Dæmi eru um það að fangar hafi verið fangelsaðir þar án dóms og laga, en Bandaríkjamenn hafa verið sakaðir um pyntingar í fangabúðunum.
Jeremy Laurence, talsmaður Mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, gagnrýnir Trump harðlega vegna ákvörðunar hans.
„Það er nauðsynlega að viðhalda virðingu og réttindum allra einstaklinga, burt séð frá þeirra stöðu. Tryggja þarf að koma sé fram við alla í samræmi við alþjóðleg mannréttindi. Innflytjendur hafa mannréttindi og þau þarf að virða,“ segir Laurence.