Metta Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, áréttaði að Danir væru einu mikilvægustu og bestu bandamenn Bandaríkjanna, er hún ræddi við blaðamenn í Brussel í dag.
Þetta sagði forsætisráðherrann eftir að J.D. Vance, varaforseti Bandaríkjanna, sagði Dani ekki koma fram eins og góðir bandamenn.
„Við höfum barist við hlið Bandaríkjamanna í marga áratugi. Við erum einn af mikilvægustu og bestu bandamönnum Bandaríkjanna og þess vegna vil ég ekki að Danmörk verði skilgreind sem slæmur bandamaður,“ segir Frederiksen við blaðamenn í Brussel.
Grænlandskrafa Bandaríkjanna hefur vakið ugg meðal Dana. Undanfarna daga hafa embættismenn Dana og innan Evrópusambandsins áttað sig á því að fólk ætti að líta málið alvarlegum augum.
Donald Trump Bandaríkjaforseti og Frederiksen ræddu saman í síma í um 45 mínútur í síðasta mánuði. Því hefur verið lýst að mönnum hafi verið heitt í hamsi og að neyðarástand hafi skapast í dönskum stjórnmálum.
Trump hefur hótað að leggja tolla á Dani og hefur ekki útilokað að beita hervaldi til að ná Grænlandi á sitt vald.