6.000 skjálftar hafa mælst við Santorini

Ný skjálftahrina reið yfir grísku eyjuna Santorini í Eyjahafi í …
Ný skjálftahrina reið yfir grísku eyjuna Santorini í Eyjahafi í morgun. AFP/Stringer

Skjálftavirknin heldur áfram á grísku eyjunni Santorini í Eyjahafi en ný skjálftahrina reið þar yfir í morgun. Fordæmalaus skjálftavirkni hefur leitt til þess að fjöldi fólks hefur nú flúið eyjuna.

Sjö skjálftar í röð mældust yfir 4,0 stigum snemma í morgun en stærsti skjálftinn síðan um helgina mældist í gærkvöldi 5,2.

Eyj­an er á virku eld­fjalla­svæði í Eyja­hafi en stjórn­völd hafa sagt jarðskjálft­ana teng­jast fleka­hreyf­ing­um frek­ar en kvikuinn­skot­um.

Byggt út á ystu nöf

Rúmlega 11.000 manns hafa farið frá Santorini síðan um helgina og bæði skip og flug­vél­ar hafa verið send­ar til eyj­unn­ar til aðstoðar við fólksflutninga.

Ekki hefur verið tilkynnt um slys eða skemmdir en björgunarsveitir hafa verið sendar á svæðið í varúðarskyni og fleiri jarðskjálftamælar hafa verið settir upp á vettvangi.

Möguleiki er á grjóthruni og sem varúðarráðstöfun hefur skólum verið lokað fram á föstudag, sem varð til þess að margir foreldrar hafa yfirgefið Santorini með börnin sín þar til skjálftahrinunni léttir.

Möguleiki er á grjóthruni og sem varúðarráðstöfun hefur skólum verið …
Möguleiki er á grjóthruni og sem varúðarráðstöfun hefur skólum verið lokað fram á föstudag, sem varð til þess að margir með börn hafa yfirgefið Santorini þar til skjálftahrinunni léttir. AFP/Stringer

„Það er órói á Santor­ini núna, fólk er að flýja, þarna eru mjög bratt­ar skriður, brún­in á öskj­unni er eins og hníf­segg, þar er mjög bratt en þar hef­ur líka mikið verið byggt af því að það er fal­legt að búa þar og mikið út­sýni. Þarna hef­ur verið byggt út á ystu nöf og þau hús eru núna í hættu, þar er bara skriða niður í sjó,“ var haft eftir Har­ald­i Sig­urðssyni, eld­fjalla­fræðingi­ og pró­fess­or emer­it­us, í viðtali við mbl.is fyrir nokkrum dögum.

Tíminn einn segir til um framhaldið

Eyjan liggur ofan á eldfjalli sem gaus síðast árið 1950 og segja sérfræðingar svæðið ekki hafa upplifað skjálftavirkni á þessum mælikvarða síðan mælingar hófust árið 1964.

Að sögn Haralds hafa skiptar skoðanir verið á meðal fræðafólks um hvort skjálftavirknin tengist Amorgos-misgenginu, og líkur séu þá á áframhaldandi skjálftavirkni, eða eldfjallinu Kolumbo, og hætta sé á að skjálftarnir séu undanfarar eldgoss.

„Ég held að sterk­ar lík­ur séu á því að þetta mis­gengi sé orðið virkt aft­ur, Amorgos-mis­gengið,“ er haft eftir honum í viðtalinu.

„Tím­inn einn sker úr um það hverj­ir hafa rétt fyr­ir sér.“

„Þarna hef­ur verið byggt út á ystu nöf og þau …
„Þarna hef­ur verið byggt út á ystu nöf og þau hús eru núna í hættu, þar er bara skriða niður í sjó,“ er haft eftir Har­ald­i Sig­urðssyni. AFP/Stringer

Fordæmislaus skjálftavirkni

6.000 skjálftar hafa mælst nálægt eyjunum Santorini, Amorgos, Anafi og Ios síðan 26. janúar.

Sérfræðingar hafa hingað til ekki getað sagt til um hvenær skjálftavirkninni lýkur en leggja áherslu á að hún sé fordæmalaus.

Eyj­an er vin­sæll áfangastaður ferðamanna og laðaði að sér um 3,4 milljónir ferðamanna árið 2023 og voru um milljón þeirra farþegar skemmtiferðaskipa. Algengara er að heimsækja eyjuna á sumarmánuðum og er fjöldi erlendra gesta því í lágmarki á þessum árstíma, að sögn yfirvalda.

Rúmlega 11.000 manns hafa farið frá Santorini síðan um helgina …
Rúmlega 11.000 manns hafa farið frá Santorini síðan um helgina og bæði skip og flug­vél­ar hafa verið send­ar til eyj­unn­ar til aðstoðar við fólksflutninga. AFP/Stringer
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert