Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að leggja 25 prósenta toll á stál og ál sem flutt er inn til Bandaríkjanna.
Trump greindi blaðamönnum um áform sín um borð í forsetaþotunni á leið til New Orleans en Trump fylgdist með úrslitaleiknum um Ofurskálina í nótt og er fyrsti sitjandi forsetinn sem gerir það.
Bandaríkjamenn kaupa mest af stáli og áli frá Kanadamönnum og þá flytja Bandaríkjamenn talsvert af stáli inn frá Brasilíu, Suður-Kóreu og Mexíkó.
Trump lagði á svipaða tolla í forsetatíð sinni 2017-2021 til að vernda bandarískan iðnað, sem hann taldi standa frammi fyrir óréttmætri samkeppni frá Asíu- og Evrópulöndum.
Trump boðaði enn fremur innflutningsgjöld á vörur frá löndum sem skattleggja innflutning frá Bandaríkjunum. Hann tilgreindi ekki hvaða þjóðir yrðu skotmark eða hvort það yrðu einhverjar undanþágur.
Stuttu eftir að Trump settist á nýjan leik í forsetastólinn boðaði hann 25 prósenta innflutningstoll á vörur frá Kanada, Mexíkó og Kína en nokkru síðar frestaði hann að koma tollunum á gagnvart Kanada og Mexíkó eftir að löndin hétu því að herða aðgerðir til að stemma stigu við flæði fíkniefnisins fentanýls og flutningi óskráðra innflytjenda til Bandaríkjanna.