55 látnir eftir að rúta steyptist ofan í gil

Rútan hafnaði í mengaðri ánni.
Rútan hafnaði í mengaðri ánni. AFP

Að minnsta kosti 55 manns létu lífið í Gvatemala þegar rútan ók í gegnum vegrið og steyptist ofan í gil.

Um 70 manns voru í rútunni sem hafnaði í á, sem er menguð af skólpi, sem gerði aðstæður fyrir viðbragðsaðila mjög erfiðar. 53 létust samstundis en tveir voru úrskurðaðir látnir á sjúkrahúsi.

Bernardo Arevalo, forseti Gvatemala, hefur lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg í landinu.

Slökkviliðsmenn og lögreglumenn á slysstað.
Slökkviliðsmenn og lögreglumenn á slysstað. AFP

Talsmenn slökkviliðsins segja að ökumaður rútunnar hafi greinilega misst stjórn á henni og lent í árekstri við nokkur ökutæki áður en hún steyptist ofan í gilið.

Umferðarslys sem leiða til tuga banaslysa eru algeng í Mið- og Suður-Ameríku. Í janúar 2018 létust 52 í Perú þegar rúta féll fram af kletti á strönd norður af höfuðborginni Lima og í Brasilíu fórust 54 í mars 2015 í rútuslysi ferðamanna í Santa Catarina-fylki í suðurhluta landsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert