„Leikreglurnar hafa breyst“: Hóta að opna hlið vítis

00:00
00:00

Isra­el Katz, varn­ar­málaráðherra Ísra­els, seg­ir að Ham­as „verði að skilja að leik­regl­urn­ar hafa breyst“ eft­ir að Ísra­el gerði hörðustu árás­ir sín­ar á Gasa frá því vopna­hlé hófst í janú­ar.

Íbúar í Jabalia á norðurhluta Gasa sjást hér ganga fram …
Íbúar í Jabalia á norður­hluta Gasa sjást hér ganga fram hjá rúst­um húsa sem eyðilögðust í loft­árás­um Ísra­ela í nótt. AFP

„Ef þeir leysa ekki alla gísl­ana strax úr haldi þá munu hliðin að hel­víti opn­ast og þeir munu standa frammi fyr­ir öll­um mætti IDF [Ísra­els­hers] í loft­inu, á sjón­um og á landi þar til sam­tök­in hafa verið gjör­eyðilögð,“ var haft eft­ir ísra­elska varn­ar­málaráðherr­an­um í yf­ir­lýs­ingu sem ráðuneytið sendi frá sér þegar hann heim­sótti Tel Nof-flug­stöðina.

Greint var frá því í morg­un að heil­brigðisráðuneyti Gasa, sem er und­ir stjórn Ham­as, hefði greint frá því að Ísra­els­her hefði drepið yfir 330 íbúa á Gasa­strönd­inni í loft­árás í nótt.

Í yf­ir­lýs­ingu frá varn­ar­málaráðherra Ísra­els í kjöl­far árás­ar­inn­ar í nótt kom fram að Ísra­els­her ætli að halda áfram að berj­ast á Gasa á meðan ekki væri búið að af­henda alla gísl­ana sem tekn­ir voru í hryðju­verk­un­um 7. októ­ber.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert