Þrír handteknir fyrir morðin á ungmennunum

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. AFP

Þrír hafa verið hand­tekn­ir í tengsl­um við skotárás sem var gerð í al­menn­ings­garði í borg­inni Las Cruces í Nýju Mexí­kó í Banda­ríkj­un­um á föstu­dags­kvöld.

Hinn tví­tugi Tom­as Ri­vas og 17 ára dreng­ur voru hand­tekn­ir í gær. Ann­ar 17 ára dreng­ur var síðan hand­tek­inn í morg­un. 

CNN grein­ir frá því að menn­irn­ir þrír hafi verið ákærðir fyr­ir morð.

Hinn 16 ára Andrew Madrid, 18 ára Ja­son Gomez og 19 ára Dom­inick Estrada létu lífið í árás­inni. 

Níu karl­menn og sex kon­ur á aldr­in­um 16 til 36 ára særðust að sögn lög­reglu. Málið er til rann­sókn­ar og er al­menn­ings­garður­inn lokaður. 

Þetta er 53. fjölda­skotárás þessa árs í Banda­ríkj­un­um. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert