„Reyni að gera mitt besta“

María Lind Sigurðardóttir
María Lind Sigurðardóttir Heiðar Kristjánsson

„Ég hef mikinn áhuga á náminu og metnað. Ég reyni þannig alltaf að gera mitt allra besta,“ segir María Lind Sigurðardóttir, sem útskrifaðist með hæstu einkunn á stúdentsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík í ár. Hún útskrifaðist af náttúrufræðibraut með einkunnina 9,61. Þess má raunar geta að María var með meðaleinkunnina 10 á bekkjarprófum á fjórða og síðasta ári skólans.

„Á þessu síðasta ári valdi ég þau fög sem ég hef mestan áhuga á, þ.e. stærðfræði, efnafræði og eðlisfræði, þannig að það útskýrir sennilega af hverju ég fékk tíu í öllum prófum,“ segir María og tekur fram að vissulega sé hún líka samviskusöm og eyði dágóðum tíma í heimalærdóminn.

En það er samt ekki svo að María eyði öllum frítíma sínum í heimanámið því hún æfir körfubolta fimm sinnum í viku og er auk þess í píanónámi í Tónlistarskólanum í Hafnarfirði en hún stefnir að því að ljúka burtfararprófi frá skólanum næsta vetur. Skömmu áður en vorprófin hófust varð María auk þess Íslandsmeistari í körfubolta með Haukum. „Það var mjög gaman. Það var svo góður andi í liðinu og við skemmtum okkur vel þannig að það fleytti okkur áfram í vetur.“

María stefnir á háskólanám með haustinu og ætlar að innrita sig í Háskóla Íslands. Hún segist hins vegar ekki enn vera búin að gera upp við sig hvaða nám verði fyrir valinu. „Læknisfræðin kemur sterklega til greina en hins vegar finnst mér líka spennandi að fara í efnafræði eða lífefnafræði,“ segir María.

María Lind Sigurðardóttir
María Lind Sigurðardóttir Kristinn Ingvarsson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær