Lögðu hald á fíkniefni

Lögreglan gerði í dag húsleit í söluturninum Draumnum við Rauðarárstíg í Reykjavík og á tveimur öðrum stöðum sem tengjast rekstraraðilum. Lögreglan lagði hald á fíkniefni í húsnæði sem tengjast þeim sem reka verslunina.

Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn segir að yfirheyrslur hafi staðið fram eftir kvöldi. Ýmislegt hafi komið í ljós í rannsókninni sem eigi eftir að skoða betur í samvinnu við tollayfirvöld og heilbrigðiseftirlit. Hann sagði að engin fíkniefni hefðu fundist í söluturninum sjálfum, en fíkniefni hefðu fundist í húsnæði sem tengjast þeim sem reka verslunina. Hann sagðist ekki hafa upplýsingar um hversu mikið hefði verið lagt hald á.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Innlent — Fleiri fréttir

Í gær