Dönsk söngkona flytur til Íslands

Tina Dickow.
Tina Dickow.

Danska söngkonan Tina Dickow er flutt til Íslands ásamt Helga Jónssyni, unnusta sínum, sem einnig er tónlistarmaður. Hafa þau keypt íbúð í Reykjavík og eru að innrétta þar hljóðver.

Dickow segir í samtali við tímaritið Metronyt í Danmörku að hún hafi verið á stöðugum ferðalögum undanfarin 10 ár. Því eigi hún auðvelt með að aðlagast nýjum stöðum og henni líði þegar eins og heima hjá sér á Íslandi. 

Hún segir að það sé kostur að á Íslandi sé hún nánast óþekkt og hún sé ánægð með það.

Dickow segist hlakka til að vinna að tónlist með Helga á Íslandi. „Ég er viss um að þetta verður tryllt tónlist og ég hlakka mikið til að semja hana." 

Metronyt

Vefur Tinu Dickow

mbl.is

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Mánudaginn 15. júlí

Sunnudaginn 14. júlí

Laugardaginn 13. júlí

Föstudaginn 12. júlí

Fimmtudaginn 11. júlí

Miðvikudaginn 10. júlí