Björk í öðru sæti á óháða breska vinsældalistanum

Björk, í frægum kjól í svanslíki, er í öðru sæti …

Björk, í frægum kjól í svanslíki, er í öðru sæti á óháða vinsældarlistanum í Bretlandi.
mbl.is

Björk Guðmundsdóttir náði öðru sæti í fyrstu viku á óháða vinsældalistanum í Bretlandi með nýjustu breiðskífu sína Vespertine, sem kom út 27. ágúst síðastliðinn. Björk er í 18. sæti með lag sitt Hidden Place á óháða smáskífulistanum þar í landi, en var í 13. sæti vikuna þar á undan. Hidden Place er sína fjórðu viku á listanum.

Björk hefur átt víða náð efstu sætum á vinsældalistum, meðal annars í Danmörku, Noregi, Frakklandi og Spáni. Þá var breiðskífan í áttunda sæti í Bretlandi. Í Bandaríkjunum komst hún í 19. sæti á Billboard-listans í fyrstu viku, sem er besti árangur hennar þar í landi fram til þessa.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert