Tónleikar Bjarkar í Laugardalshöll 19. desember

Björk.
Björk.

Björk Guðmundsdóttir hyggst ljúka tónleikaferð sinni um heiminn með tónleikum í Reykjavík 19. desember næstkomandi. Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur með Björk á tónleikunum. Björk er nú á ferð um heiminn að kynna nýútkomna breiðskífu sína, Vespertine.

Í tónleikaferðinni hefur hún sungið í leikhúsum og óperum, en hér á landi mun hún syngja í Laugardalshöll. Með henni hefur leikið belgísk sinfóníuhljómsveit undir stjórn Simons Lee, en þegar kom að tónleikum hér á landi leitaði Björk til Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Einnig verða með í för grænlenskur stúlknakór, inúítasöngkonan Tagaq, hörpuleikarinn Zeena Parkis og bandarískir tónlistarmenn sem kalla sig Matmos.

Að sögn eins skipuleggjenda tónleikanna, Ásmundar Jónssonar hjá Smekkleyu, þótti ekki gerlegt að hafa sama háttinn á hérlendis og ytra því þá kæmust mun færri til að sjá tónleikana. Hér væru einfaldlega ekki til svo stórir tónleikasalir að hentuðu.

Eins og getið er leikur Sinfóníuhljómsveit Íslands með Björk en Simon Lee mun stjórna hljómsveitinni eins og á öllum tónleikum hennar í ferðinni. Framkvæmd tónleikanna er í höndum Hr. Örlygs ehf. og Smekkleysu, en Síminn er styrktaraðili.

Miðasala hefst á tónleikana mánudaginn 19. nóvember næstkomandi í miðasölu Háskólabíós. Alls komast um 2.400 manns fyrir í sæti í Laugardalshöll, en aðeins verður selt í númeruð sæti og verður svipað fyrirkomulag og á Vínartónleikum Sinfóníunnar og tónleikum kúbversku hljómsveitarinnar Buena Vista Social Club fyrr á árinu.

Hámark miðafjölda á mann verður bundið við tíu miða.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert