Lögreglan í Reykjavík stendur fyrir sérstöku átaki í dag, þar sem stefnt er að slysalausum degi í umferðinni. Dagurinn er þó ekki alveg óhappalaus, því tilkynnt var til lögreglu um einn árekstur rétt í þessu. Að öðru leyti hefur umferð gengið vel í morgun. Varðstjóri segir að lögregla verði mjög sýnileg á þessum degi en umferðarlöggæsla verður verulega aukin. Þetta er í þriðja sinn sem embættið beitir sér fyrir fækkun slysa í umferðinni með þessu hætti.
„Til að ná markmiðinu verður lögreglumönnum við umferðarlöggæslu fjölgað verulega og fengin lögreglutæki að láni frá öðrum lögregluliðum auk þess sem lögreglumenn frá ríkislögreglustjóranum koma til aðstoðar. Fullyrða má að of hraður akstur sé ástæða fyrir mjög mörgum óhöppum í umferðinni. Mikilvægt er því að ökumenn hafi fulla athygli við aksturinn, aki eftir lögum og reglum og hagi hraða ökutækja eftir aðstæðum hverju sinni," segir í tilkynningu á lögregluvefnum í tilefni dagsins. Lögregluvefurinn