Ungs manns sem framdi vopnað rán í útibúi Sparisjóðs Hafnarfjarðar á Reykjavíkurvegi 66 í Hafnarfirði er enn leitað, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Ekki liggur fyrir hversu miklu hann náði af peningum.
Lögreglunni barst tilkynning um ránið klukkan 9:42 í morgun og var hún komin á staðinn um tveimur mínútum síðar en þá var ránið afstaðið og gerandinn, ungur maður á milli tvítugs og þrítugs að talið er, horfinn á brott. Hann hafði hulið andlit sitt.
Manninum var lýst sem lágvöxnum, u.þ.b. 170 sm á hæð, klæddur ljósri hettupeysu og dökkum buxum. Þá bar hann brúnan bakpoka á bakinu. Eftir ránið hljóp hann í átt að Stakkahrauni en hvarf þá sjónum.
Rannsókn málsins stendur yfir en lögregla biður alla þá er upplýsingar geta gefið um grunsamlegar mannaferðir á þessum tíma að hafa samband í síma 525 3300.