Siglt til sigurs

mbl.is/Kristinn

Skútan Arcelor Dunkerque lagðist að bryggju í Reykjavíkurhöfn í gærkvöldi og hafði þar með sigur í frönsku siglingakeppninni Skippers d'Isande. Arcelor var fimm daga og níu klukkustundir á siglingu og bætti um 39 mínútur met íslenskrar áhafnar sem sigldi þessa leið fyrir þremur árum. Tíu skútur og 85 skipverjar taka þátt í keppninni sem er nú haldin í annað skipti í minningu sjómanna sem sigldu frá Frakklandi fyrr á öldum til veiða við Íslandsstrendur. Frakkar eru miklir kappsiglingamenn og löng hefð fyrir siglingakeppnum þar. Skúturnar tíu lögðu upp frá Paimpol í Frakklandi sl. sunnudag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert