Hætt við björgun Guðrúnar Gísladóttur

Guðrún Gísladóttir KE á strandstað við Lófót áður en hún …
Guðrún Gísladóttir KE á strandstað við Lófót áður en hún seig útaf skerinu og sökk.

Norska ríkið hefur tekið þá ákvörðun að hætta við að bjarga flaki fjölveiðiskipsins Guðrúnar Gísladóttur KE-15 af hafsbotni en skipið sökk við Lófót í Noregi 19. júní í hitteðfyrra. Í staðinn verður olíu dælt úr tönkum skipsins en komið hefur í ljós að talsvert mun hafa lekið úr þeim nú þegar.

Svein Ludvigsen sjávarútvegsráðherra segir að aðstæður til björgunar hafi gjörbreyst, en í síðustu viku kom í ljós að 40 metra löng rifa hefur myndast á annarri síðu skipsins svo að sér inn í lest, vélarhús og olíutanka skipsins.

Norsk stjórnvöld gerðu íslenskum eigendum Guðrúnar í september í fyrra að tæma olíu úr skipinu, ná flakinu upp og fjarlægja það en þeir uppfylltu ekki þær skyldur sínar, segir Ludvigsen í yfirlýsingu. Í október sl. tók svo strandgæslan við björgunartilraun en þegar flakið var reist á réttan kjöl 12. maí sl. kom í ljós verulegar skemmdir á skrokknum.

Sveitarstjórnin óhress

Guri Ingebrigtsen héraðsstjóri í Vestvågøy, sveitinni sem strandstaður Guðrúnar Gísladóttur heyrir til, sagðist í samtali við svæðisútvarp norska útvarpsins í Nordland ekki sætta sig við að flakið af Guðrúnu verði látið eiga sig. Segir hún fréttina hafa fengið mjög á sig og sveitarstjórnin muni ekki taka ákvörðuninni þegjandi, heldur reyna að fá henni snúið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert