Verslunarkeðjan Karen Millen seld félagi í eigu Baugs

Verlsun Karen Millen í Covent Garden í London.
Verlsun Karen Millen í Covent Garden í London.

Verslunarkeðjan Karen Millen var í morgun seld til Oasis Group, sem er í meirihlutaeigu Baugs Group hf. Viðskiptin eru metin á 15,8 milljarða króna. Greitt er fyrir kaupin með peningum og hlutabréfum og eignast hluthafar Karen Millen 25% hlut í hinu sameinaða fyrirtæki.

Með kaupunum verður til fyrirtæki í verslun með kventískufatnað, sem á og rekur fjögur mismunandi vörumerki, með heildarsölu sem nemur um 46 milljörðum króna og yfir 550 verslanir.

Í tilkynningu frá Baugi segir að stofnendur Karen Millen, sem rekur verslanir með kventískufatnað og fylgihluti sem og Whistles keðjuna, hafi samþykkt að selja reksturinn til Oasis Group, sem er í meirihlutaeigu Baugs Group, í viðskiptum sem metin eru á 15,8 milljarða króna.

Eignarhlutur stofnenda, Kevin Stanford og Karen Millen, í fyrirtækinu samsvarar 60%, en ýmsir utanaðkomandi hluthafar ráða yfir 40% hlutafjár. Greitt er fyrir kaupin með peningum og hlutabréfum og eignast hluthafar Karen Millen 25% hlut í hinu sameinaða fyrirtæki.

Oasis á og rekur 281 verslun í 14 löndum og er markhópur þess sjálfstæðar konur á aldrinum 18-30 ára sem fylgjast vel með tískustraumum. Coast sérhæfir sig í kvenfatnaði fyrir sérstök eða fínni tilefni og rekur samtals 135 verslanir. Karen Millen hefur markað sér sess utan hins almenna markaðar á jaðri hönnunarmerkjanna. Whistles höfðar til eldri markhóps með einstaklingsbundnari smekk en aðrar hátískubúðir.

Karen Millen rekur yfir 100 verslanir sem eru flestar staðsettar í Bretlandi, en einnig á Írlandi, meginlandi Evrópu, í Mið-Austurlöndum, Austurlöndum fjær, Rússlandi og Bandaríkjunum. Mikil uppbygging hefur átt sér stað undanfarin tvö ár með opnun 40 nýrra verslana víðsvegar um heim. Áætluð velta fyrir rekstrarárið sem lýkur í janúar 2005 er 15,8 milljarðar kr., samanborið við 8,8 milljarða kr. í ársuppgjörinu frá janúar 2002.

Karen Millen Limited keypti Whistles í júlí 2002 fyrir 792 milljónir kr. Góður árangur náðist í samþættingu rekstrarins innan sex mánaða og er áætluð velta Whistles í árslok 2005 um 4,6 milljarðar kr.

„Þegar Baugur Group keypti Oasis ásamt stjórnendum félagsins síðla árs 2003 lýstum við því yfir að ætlun okkar væri að stuðla að enn frekari vexti félagsins með því að nýta reynslu, kunnáttu og aðstöðu Oasis. Við sáum þá að hægt væri að bæta tveimur eða þremur vörumerkjum við Oasis. Karen Millen og Whistles hæfa Oasis og Coast fullkomlega,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs Group.

Bank of Scotland og Kaupþing Bank Ltd. koma að fjármögnun kaupanna.

Whistlesverslun í London.
Whistlesverslun í London.
Úr Whistlesverslun í London
Úr Whistlesverslun í London
Úr Whistlesverslun í London.
Úr Whistlesverslun í London.
Úr Karen Millen verslun.
Úr Karen Millen verslun.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert