Björgunarsveitir leita enn að Sri Rhamawati

Leit björgunarsveitanna undirbúin síðdegis í dag.
Leit björgunarsveitanna undirbúin síðdegis í dag. mbl.is/Árni Torfason

Björgunarsveitir Landsbjargar leita enn að Sri Rhamawati, en leit sveitanna hófst klukkan 17 í dag. Að sögn Ómars Smára Ármannssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni í Reykjavík, er ekkert nýtt að frétta af málinu. Hann sagði að leit á sumum stöðum væri lokið og hefðu leitarmenn þar verið sendir heim, en aðrir héldu áfram störfum fram eftir kvöldi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert