Ekki sett út rekald á morgun vegna leitar að Sri Rhamawati

Ekki verður sett út rekald á morgun í Hofsvík á Kjalarnesi vegna leitarinnar að Sri Rhamawati, að því er fram kemur í tilkynningu frá slysavarnarfélaginu Landsbjörgu. Þar segir að ákveðið hafi verið að fresta því fram á sunnudag eða mánudag en þá verði sjávarföll svipuð og þegar líki Sri var varpað í sjó fram. Þá gerir veðurspá einnig fyrir betra veðri á þeim tíma, að því er fram kemur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka