Auddi og Sveppi hituðu fólk upp fyrir landsleikinn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag. Metaðsókn er að leiknum en 20.204 miðar seldust.
mbl.is/Árni Torfason
Nýtt aðsóknarmet hefur verið sett á Laugardalsvelli en 20.204 miðar seldust á landsleik Íslands og Ítalíu, sem hófst fyrir nokkrum mínútum. Mikil og góð stemning er á leikvanginum og leikur veðrið við bæði áhorfendur og leikmenn, sól og blíða.