Vetnisrannsóknir á Keflavíkurflugvelli

Íslensk nýorka hefur átt í viðræðum við bandaríska varnarmálaráðuneytið um að nýta herstöðina á Keflavíkurflugvelli fyrir rannsóknarverkefni um nýtingu vetnis, að því er kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins. Ekki sé þó um umfangsmikið verkefni að ræða. Þá á fyrirtækið í viðræðum við marga bílaframleiðendur um að flytja hingað vetnisbíla í tilraunaskyni í byrjun ársins 2006. Þrír vetnisstrætisvagnar hafa verið í notkun hér undanfarna mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert