Rannsóknar- og nýsköpunarhús Háskólans á Akureyri tekið í notkun

Nýtt Rannsóknar- og nýsköpunarhús Háskólans á Akureyri var formlega tekið …
Nýtt Rannsóknar- og nýsköpunarhús Háskólans á Akureyri var formlega tekið í notkun í dag.

Nýtt Rannsóknar- og nýsköpunarhús Háskólans á Akureyri var formlega tekið í notkun í dag. Á fyrstu hæð hússins eru kennslustofur í verklegri kennslu og í þeirri sömu álmu er rannsóknastofurými. Á annarri hæð eru skrifstofur Auðlindadeildar Háskólans á Akureyri og skrifstofur Hafró. Þar eru einnig skrifstofur Rf og skrifstofur Matvælaseturs HA.

Ýmsar rannsóknastofnanir hafa aðsetur í húsinu, þ.á.m. Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, Byggðarannsóknastofnun Íslands, CAFF, Ferðamálasetur Íslands, auðlinda- og upplýsingatæknideildir Háskólans á Akureyri, Hafrannsóknastofnunin, Impra/Iðntæknistofnun, Jafnréttisstofa, Matvælasetur HA, Náttúrufræðistofnun Íslands, Akureyrarsetur, Orkustofnun, Orkusjóður, PAME, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, Veðurstofa Íslands, Veiðistjórnunarsvið Umhverfisstofnunnar og aðalskrifstofa Háskólans á Akureyri.

Á fyrstu hæð hússins eru kennslustofur HA í verklegri kennslu (2 stórar rannsóknastofur) og í þeirri sömu álmu er rannsóknastofurými Rf (3 rannsóknastofur og autoklafi og gerð æta, auk þvottarýmis, en tvö síðasttöldu rýmin eru einnig nýtt af HA - þ.e. vegna verklegrar kennslu). Á annarri hæð eru skrifstofur Auðlindadeildar HA og skrifstofur Hafró. Þar eru einnig skrifstofur Rf og skrifstofur Matvælaseturs HA.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert