Og Vodafone kaupir tvö dótturfélög Norðurljósa en ekki félagið allt

Og Vodafone kaupir Íslenska útvarpsfélagið og Frétt en ekki Norðurljós …
Og Vodafone kaupir Íslenska útvarpsfélagið og Frétt en ekki Norðurljós öll. mbl.is

Stjórnir Og Vodafone (Og fjarskipta hf.) og Norðurljósa hafa komist að samkomulagi um kaup Og Vodafone á öllu hlutafé tveggja dótturfélaga Norðurljósa, Íslenska útvarpsfélagins ehf. (ÍÚ) og Fréttar ehf.

Þetta er breyting frá því fyrirkomulagi sem kynnt var í tilkynningu til Kauphallar Íslands þann 28. október sl. þar sem gert var ráð fyrir að Og Vodafone myndi kaupa allt hlutafé í Norðurljósum.

Heildarkaupverð félaganna er samtals 5.800 milljónir króna miðað við markaðsgengi bréfa Og Vodafone í lok dags í gær, 6. desember, sem greiðist að hluta með útgáfu nýrra hluta í Og Vodafone að nafnverði 810 milljónir og hins vegar með peningum.

Tekið tillit til hugsanlegra skattaskuldbindingar

Í tilkynningu um kaupin segir að í áreiðanleikakönnun vegna kaupanna sé tekið á mögulegum skattaskuldbindingum Íslenska útvarpsfélagsins en skattamál Norðurljósa og tengdra félaga hafi verið til skoðunar um nokkurt skeið.

Endanleg niðurstaða varðandi skattaskuldbindingar ÍÚ liggi ekki fyrir en verði athugasemdir skattyfirvalda staðfestar af yfirskattanefnd og eftir atvikum dómstólum sé það mat stjórnenda Og Vodafone að samanlögð fjárhæð þessara skuldbindinga geti ekki orðið hærri en 460 milljónir króna og væri í kaupverði tekið tillit til þessa. Stjórnendur Og Vodafone telja að með þessu sé mætt ýtrustu kröfum opinberra aðila án þess að um viðurkenningu á ofangreindum kröfum sé að ræða.

Miðað við sex milljarða veltu

Kaupverðið miðast við að heildareignir ÍÚ og Fréttar séu um 6.500 milljónir króna og að vaxtaberandi skuldir séu um 3.400 milljónir. Uppbygging og tilheyrandi fjárfesting vegna Digital Ísland standi yfir og megi gera ráð fyrir viðbótarfjárfestingu vegna þess sem yrði fjármögnuð með lánsfé að fjárhæð 500 milljónir. Áætlanir geri ráð fyrir að á næsta ári muni velta félaganna tveggja, ÍÚ og Fréttar, nema yfir sex milljörðum og að EBITDA félaganna muni nema 700-900 milljónum. Að jafnaði megi gera ráð fyrir að fjárfestingahlutfall ÍU og Fréttar nemi 3 - 3,5% af veltu.

Samþætting rekstrar framundan

"Með kaupum á dótturfélögum Norðurljósa er verið að kaupa eignir sem falla vel að rekstri Og Vodafone. Þá er búið að taka tillit til helstu óvissuþátta þannig að stjórnendur félaganna geta nú einbeitt sér að því að samþætta rekstur og ná fram þeim samlegðaráhrifum sem í félögunum búa,” segir Eiríkur S. Jóhannsson, forstjóri Og Vodafone, í tilefni kaupanna.

Og Vodafone hefur boðað til hluthafafundar miðvikudaginn 15. desember þar sem lögð verður fyrir hluthafa tillaga um heimild til hækkunar hlutafjár félagsins um allt að 810 milljónir að nafnvirði vegna kaupanna.

Frétt mbl.is af kaupunum 28. október sl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert