Pokasjóður verslunarinnar gefur 5 milljónir til hjálparstarfs

Stjórn Pokasjóðs verslunarinnar hefur ákveðið að veita 5 milljónum króna til hjálparstarfs vegna flóðanna sem urðu í kjölfar jarðskjálftanna í Indlandshafi á öðrum degi jóla. Framlag sjóðsins hefur verið afhent Rauða krossi Íslands.

Fram kemur í tilkynningu, að undantekning sé að veitt sé úr Pokasjóði til verkefna erlendis en sérstök ástæða þótti til að leggja fram fé úr sjóðnum í þessu tilfelli vegna umfangs hörmunganna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert