Ekki hætta á teljandi flóðbylgjum vegna jarðskjálfta við Ísland

Haldinn var fundur í Vísindamannaráði almannavarna í gær þar sem rætt var hvort sjávarflóð eins og það, er varð í kjölfar jarðskjálfta í Suðaustur-Asíu á annan jóladag, væru áhyggjuefni á Íslandi. Þar kom m.a. fram, að aðstæður á Atlantshafi séu þannig að líkur á stórum flóðbylgjum vegna jarðskjálfta séu litlar og jarðskjálftar við Ísland ekki þess eðlis að þeir valdi teljandi flóðbylgjum.

Hins vegar geta orðið sjávarflóð við Ísland, einkum vegna veðurs og hárrar sjávarstöðu og eru slíkir atburðir vel þekktir. Skriður ofan af landi og á landgrunnsbrúninni á hafsbotni, t.d. í sambandi við eldgos, geta einnig valdið flóðum. Fram kemur á heimasíðu ríkislögreglustjóra, að þessi flóð séu af allt öðru tagi og oftast miklu minni en hamfarirnar í Asíu, þar sem tugir þúsunda manna hafi dáið. Sjávarflóð á Íslandi, sem geti og hafi valdið tjóni á mannvirkjum, hafi yfirleitt talsverðan aðdraganda og því gefist tími til viðvörunar.

Í þeim löndum, sem urðu fyrir flóðbylgjunni í Indlandshafi, virðast viðvörunarkerfi ekki hafa virkað eða hreinlega ekki verið til staðar. Þá skorti einnig á að almenningur væri upplýstur um rétt viðbrögð við slíkri náttúruvá. Á Kyrrahafi, t.d. við Japan, er virkt kerfi þar sem viðvörunum um flóðbylgjur er komið á framfæri ef nauðsynlegt þykir. Á Íslandi er virkt bráðavárviðvörunarkerfi í þróun vegna jarðskjálfta og eldgosa og segir á heimasíðu ríkislögreglustjóra, að mikilvægt sé að halda því vel við og efla enn frekar. Slíkt kerfi á alþjóðavísu gæti dregið úr afleiðingum náttúruhamfara eins og urðu á Indlandshafi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert