Úrval-Útsýn hefur skipulagt tvær sérferðir fyrir golfiðkendur til Pattaya í Taílandi í janúar og febrúar.
Að sögn Peters Salomon, sölustjóra golfferða hjá ÚÚ, hafa margir hringt viljað fá staðfest að farið verði í ferðirnar, í kjölfar náttúruhamfaranna við Indlandshaf.
Hann hafi þegar hringt utan og fengið þær upplýsingar að Pattaya sé ekki á hamfarasvæðunum og svæðið sé mjög öruggt og þar ami ekkert að fólki.