Ferðir Íslendinga raktar með upplýsingum um notkun krítarkorta

Neyðarhjálp safnast upp á flugvellinum á Súmötru í Indónesíu.
Neyðarhjálp safnast upp á flugvellinum á Súmötru í Indónesíu. ap

Níu af þeim 10 Íslendingum sem óttast var um eftir að miklar flóðbylgjur skullu á í Suður-Asíu á annan dag jóla, hafa látið vita af sér. Fólkið reyndist heilt á húfi.

Um var að ræða þriggja manna fjölskyldu sem stödd er í Taílandi, fimm manna fjölskyldu á Balí og einstakling sem staddur er í Taílandi. Að sögn Péturs Ásgeirssonar, skrifstofustjóra í utanríkisráðuneytinu, höfðu báðar fjölskyldurnar verið á svæði þar sem hvorki var síma- né tölvusamband.

Samkvæmt upplýsingum utanríkisráðuneytisins hefur enn ekkert heyrst frá einum Íslendingi sem vitað er að var á Taílandi þegar hamfarirnar áttu sér stað. Ráðuneytið telur þó ekki ástæðu til að ætla annað en að viðkomandi sé heill á húfi.

Fjölskyldan á Taílandi hringdi heim í nótt og fjölskyldan á Balí sendi tölvupóst í morgun, en í boðum sem frá fjölskyldunum bárust kom fram að ekkert amaði af þeim og að allir væru heilir á húfi. Seinni partinn í dag barst utanríkisráðuneytinu síðan upplýsingar um að annar einstaklinganna sem óttast var um væri heill á húfi, en hann hringdi heim í dag.

Aðspurður segir Pétur ráðuneytið ekki hafa haft ástæðu til að ætla annað en að viðkomandi væri heill á húfi, svo og hinn einstaklingurinn sem enn hefur ekki látið vita af sér. Pétur segir ráðuneytið hafa fengið heimild hjá Persónuvernd og fjölskyldum fólksins til að athuga hvort kreditkort þeirra hafi verið notuð síðustu daga. Aðeins var kannað hvort kortið hefði verið notað og hvort það hefði þá verið notað í verslun eða hraðbanka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert