Tveir Íslendingar á flóðasvæðum í Asíu hafa enn ekki látið vita af sér

Átta af þeim 10 Íslendingum sem ekki var vitað voru staddir eftir að miklar flóðbylgjur skullu á í Suður-Asíu á annan dag jóla, hafa látið vita af sér. Fólkið reyndist heilt á húfi. Þeir tveir sem ekki hafa látið vita af sér voru staddir í Taílandi. Utanríkisráðuneytið segist ekki ætla annað en að ekkert ami að þeim. Frá þessu var greint í fréttum Ríkisútvarpsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert