Nemendafélag Tækniháskóla Íslands styrkir UNICEF

Technis, nemendafélag Tækniháskóla Íslands, færði 7. janúar s.l. UNICEF á Íslandi kr. 100.000 að gjöf, að því er segir í tilkynningu félagsins. Er gjöfin ætluð til hjálpar börnum á flóðasvæðum í Asíu eftir þær hörmungar sem þar hafa gengið yfir.

Stjórn Technis vill með gjöf þessari sýna gott fordæmi og skorar á önnur nemendafélög að sýna skjót viðbrögð og gera slíkt hið sama, að því er fram kemur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert