Almenningur ehf. fær ekki trúnaðarupplýsingar

Einkavæðingarnefnd synjaði í dag ósk forsvarsmanna félagsins Almennings ehf. um aðgang að trúnaðarupplýsingum um Símann samkvæmt umboðum og einnig var ósk um lengdan tilboðsfrest synjað. Haft var eftir Orra Vigfússyni, einum forsvarsmanna Almennings, í fréttum Útvarpsins, að Almenningur ehf. muni samt sem áður gera tilboð í Símann ásamt einhverjum öðrum hópum og á lokastigi sölunnar fái almenningur að taka þátt í því ásamt félaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert