Ekið var á 10 ára stúlku á gatnamótum Háaleitis- og Kringlumýrarbrautar á öðrum tímanum í dag, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Reykjavík.
Stúlkan var flutt á slysadeild. Lögregla segir hana hafa verið með rænu en hún skarst á læri og hlaut hugsanlega innvortis meiðsl þegar ekið var á hana.
Slysið varð þegar stúlkan var að fara yfir gangbraut og bíllinn að taka hægri beygju. Bæði voru á grænu ljósi en samkvæmt umferðarlögum hefur gangandi vegfarandi forgang við slíkar aðstæður.