Útgjöld til þróunarmála og alþjóðastofnana aukast um 487 milljónir króna milli ára, samkvæmt fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2006. Þannig aukast framlög til Þróunarsamvinnustofnunar Íslands um 229 milljónir króna og útgjöld til þróunarmála og alþjóðlegrar hjálparstarfsemi aukast um 238 milljónir.