Sérsveitarmönnum ríkislögreglu fjölgað

Sérsveitarmenn á æfingu.
Sérsveitarmenn á æfingu.

Framlag til embættis ríkislögreglustjóra hækkar um 103,5 milljónir króna á næsta ári og verður 1042 milljónir samkvæmt fjárlagafrumvarpinu, sem lagt var fram í dag. Er fjárframlag vegna sérsveitar lögreglunnar þannig aukið um 111,5 milljónir króna en sérsveitarmönnum verður fjölgað um 9 hjá embætti ríkislögreglustjóra í Reykjavík og um 6 í Keflavík auk þess sem gert er ráð fyrir viðbótar vaktbíl.

Einnig er gert ráð fyrir 15 milljóna króna framlagi til að ráðast í sambærilegar skipulagsbreytingar á störfum sérsveitarmanna hjá sýslumanninum á Akureyri og gerðar hafa verið í Reykjavík. Með þeirri breytingu fjölgar lögreglumönnum á Akureyri um fjóra en sérsveitarmennirnir þar verða starfsmenn ríkislögreglustjóra með aðsetur á Akureyri og undir daglegri stjórn sýslumannsins þar. Þetta fyrirkomulag tók gildi um mitt þetta ár og verður til reynslu í ár.

Þá er veitt 14 milljóna króna tímabundið framlag til áframhaldandi kaupa á vopnum og öðrum búnaði fyrir sérsveitina.

Einnig er í fjárlagafrumvarpinu gert ráð fyrir 13 milljóna króna viðbótarframlagi til að styrkja rekstur efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóraembættisins og fjarskiptamiðstöðvar embættisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert