Miðstjórn ASÍ samþykkti í dag ályktun þar sem lýst er yfir vonbrigðum með þá efnahags-, atvinnu- og félagsmálastefnu sem birtist í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar.
Í ályktuninni segir, að á grundvelli eigin fjárlagafrumvarps spái fjármálaráðuneytið um 4% verðbólgu næstu árin, miklu ójafnvægi í þjóðarbúskapnum og áframhaldandi háum vöxtum og sterku gengi með tilheyrandi vandræðum fyrir útflutnings- og samkeppnisatvinnuvegina. Þetta gerist þrátt fyrir að ASÍ, Seðlabankinn og fleiri aðilar hafi kallað eftir ábyrgri efnahagsstefnu og meiri festu í ríkisfjármálum. Ekki verði heldur séð á frumvarpinu að sátt geti verið um þá félagsmálastefnu sem þar birtist.
„Miðstjórn ASÍ skorar á ríkisstjórn og Alþingi að taka með ábyrgum hætti þátt í efnahagsstjórninni og beita ríkisfjármálunum með þeim hætti að það dragi úr þörf fyrir harkalegar aðgerðir Seðlabankans í peningamálum samhliða því sem verðbólga lækki. Jafnframt leggur miðstjórn ASÍ áherslu á mikilvægi velferðarkerfisins," segir í ályktun miðstjórnarinnar.