Í ályktun um viðskipta- og neytendamál, sem samþykkt var á landsfundi Sjálfstæðisflokksins, segir m.a. að að í næstu skrefum í átt til einkavæðingar þurfi að felast að ríkið dragi sig út úr verslunarrekstri á borð við ÁTVR og Fríhöfnina, svo og rekstri þar sem það er í samkeppni við einkaaðila. Megi í því sambandi nefna hluta af starfsemi Ríkisendurskoðunar og fjársýslu ríkisins. Í ályktuninni er einnig hvatt til að verslun með áfengi verði gefin frjáls.
Þá segir í ályktuninni, að húsnæðislánamarkaðurinn sé dæmi um þær framfarir sem orðið hafi í íslensku viðskipta- og atvinnulífi á síðustu árum. Viðskiptalífið sé farið að færa sig inn á fleiri svið en áður með jákvæðum ávinningi fyrir neytendur. Tímabært sé að ríkið hætti að reka lánasjóð til húsnæðiskaupa þó að það geti eftir sem áður haft hlutverki að gegna til að aðstoða þá sem ekki geti fengið lánafyrirgreiðslu til húsnæðiskaupa í bankakerfinu.