Talsmenn FARICE vonast til þess að netsamband komist fljótt í samt lag

Að sögn talsmanna FARICE-sæstrengsins kom upp bilun í ljósleiðara í Skotlandi, n.t.t. á milli Inverness og Elgin, og hefur það truflað netumferð hérlendis til útlanda. Bilunin kom upp um kl. 11.30 og er vonast til þess að bilunin muni ekki vara lengi. Ekki liggur fyrir að svo stöddu hvað olli biluninni, en rekja má fyrri bilanir til framkvæmda verktaka eða þá til glorsoltinna nagdýra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka