Alls skrifuðu 32.044 einstaklingar undir áskorun á vef Deiglunnar, þar sem skorað er á blaðamenn og ritstjóra DV að endurskoða ritstjórnarstefnu blaðsins og eigendur minntir á þeirra ábyrgð á útgáfunni. Forsvarsmenn undirskriftarlistans ætla að afhenda listann á ritstjórnarskrifstofu DV nú í hádeginu, að sögn Borgars Þórs Einarssonar, formanns SUS.